Byggingar og mannvirki af öllum gerðum hafa fylgt manneskjum eins langt og sögur ná og raunar lengur. Á Íslandi tengjum við torfbæina við fortíðina og sterkan menningararf þjóðarinnar. Byggingarstílar breytast með tímanum, við verndum sumt og rífum annað niður. Þetta eru verk mannsins og heimkynni okkar, þau veita skjól frá náttúruöflum.
0 Comments
Að mínu mati er fjöltyngi mjög áhugavert en of lítið rannsakað fyrirbæri. Áhugi minn á fjöltyngi liggur aðalega í áhrifum þess á tjáningu. Aukið upplýsingaflæði og betri samgöngur hafa gert fólksflutninga á milli landa og menningarsvæða auðveldari. Stríð og óeirðir fjölga líka flóttafólki í heiminum. Allt leiðir þetta til fjölmenningarlegra samfélaga og fjöltyngis. Áhugi minn liggur innan þess hvernig fjöltyngi mótar manneskjuna, samskipti hennar við aðra og tjáningu menningar almennt.
|
KreddurAllir geta sent inn grein fyrir Kreddur svo lengi sem viðfangsefnið tengist þjóðfræði á einn eða annan hátt. Greinar
December 2025
|