Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband

„Djöfladýrkendur eru nefnilega upp til hópa vitleysingar“

5/12/2026

0 Comments

 
Á flandri mínu um bókamarkað nýlega rambaði ég á bók sem fjallar um árumeistara
jarðar. Eftir smá umhugsun ákvað ég að kaupa bókina, gluggaði aðeins í hana þegar
heim var komið og gleymdi henni svo í kjölfarið. Í augnablikinu safnar hún ryki inni í
bókaskáp, umkringd bókum sem einhverjir myndu eflaust fussa og sveia yfir að ég
hafi eytt pening í.
​

Vinsældir hins framandi, samsæriskenningar,
​kuflar og Baphomet

​

​Margir Íslendingar, eins og fólk víða um heim, eru einstaklega nýjungagjarnir. Það
kemur því ekki á óvart að straumar, stefnur og samtök tengd andlegum málefnum af
ýmsum toga finni á endanum leið sína hingað. Þau ná ekki öll fótfestu, en það þýðir
samt ekki að þau hafi enga fylgjendur hér á landi.
Í kringum mörg þessara samtaka er að finna alls konar samsæriskenningar. Þær má
eflaust að einhverju leyti rekja til þess að aðgangur að reglum og siðum þeirra er
takmarkaður. Það má spyrja sig hvað veldur? Er það vegna áðurnefndra reglna og
siða sem fólk þekkir ekki? Eða er það kannski vegna íburðarmikilla húsa sem hýsa
sum þessara samtaka?
Picture
Eins og sjá má hér er stúkuheimili Frímúrara á Akureyri einstaklega íburðarmikið.  
​Hvaða myrkraathafnir ætli eigi sér stað í þessu húsi sem gnæfir yfir miðbæinn?
Þeir sem hafa keyrt um miðbæ Reykjavíkur hafa eflaust séð stórt hvítt hús, skáhallt á bak við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Þarna er samkomuhús Frímúrarareglunnar í Reykjavík. Þýðir það að þarna sé að finna kuflaklætt fólk tilbiðja ævaforna dímóna? Miðað við að Frímúrarareglan bendir á að hún henti vel þeim mönnum sem vilja þroska sig og bæta en byggi engu að síður á kristnum boðskap (Er Reglan fyrir mig?, e.d.) má gera ráð fyrir að svo sé ekki. Oddfellowreglan viðurkennir „tilvist einnar æðstu veru sem skapað hefur heiminn og heldur honum við, óháð trúarbrögðum“ (Að ganga í Oddfellowregluna, e.d.).
​Á meðan Oddfellowreglan hefur starfað á Íslandi síðan 1897 (Upphaf Oddfellowreglunnar, e.d.) og Frímúrarar síðan 1919 (Hvað er Reglan, e.d.), eru fleiri reglur sem eru mun yngri. Má þar til dæmis nefna hina íslensku Drúídareglu sem hefur verið starfandi hérna síðan 1996, fyrst undir væng hinnar norsku Ríkisstórstúku en síðan 2023 sem sjálfstæð eining (Um Regluna, e.d.). Líkt og þær reglur sem hér hefur verið fjallað um segja Drúídar að þeirra markmið sé að stuðla að auknum þroska sinna félagsmanna og vill reglan upplýsa félaga sína um siðfræðileg og andleg verðmæti. Þarna eru engin trúarbrögð nefnd og má spyrja sig hvort það sé til þess að vera ekki fráhrindandi. Í sumum tilfellum virkar það eflaust vel að vera dulur og hleypa fólki ekki of nálægt en það hljóta að vera mörk þar. En víkjum nú frá reglum sem numið hafa hér land og fallegum híbýlum þeirra, þótt mikilfengleg séu, og að þeim sem eiga engin safnaðarheimili svo vitað sé.
​

​Wicca
​

​Á sjötta áratug síðustu aldar skrifaði breski ríkisstarfsmaðurinn Gerald Gardner bókina Witchcraft Today. Gardner þessi hafði löngum haft áhuga á dulspeki og var sagður hafa verið meðlimur í nornahópi. Wicca er náttúrutrú þar sem iðkendur tilbiðja bæði guð og gyðju (Alexandra Diljá Guðlaugsdóttir, 2008, bls. 15). Bók Gardner er talin vera grunnur þeirrar trúar sem kallast Gardnerian Wicca og hundruð þúsunda fólks um allan heim fylgir. Í viðtali við NT-Helgarblað árið 1985 sagði Árni Leósson að þótt engar staðfestar heimildir hefðu verið til áður fyrr um langlífa hópa norna á Íslandi mætti ætla að nornahópar hefðu verið hér á landi (Árni Leósson, 1985, bls. 16). Í dag má hins vegar finna einstaklinga sem skilgreina sig sem nornir (Erla Björg Gunnarsdóttir, 2015) og ef til vill tilheyra þeir nornahópum.
​Ef fólk trúir því að hægt sé að flokka galdur eftir lit, að hvítt sé gott og svart sé vont, þá flokkast Wicca sem hvítigaldur. En hvað með svartagaldur? Hvað hræðist fólk og segir illt?
​

Fólk hræðist satanisma

Á síðasta kvöldi aprílmánaðar árið 1966 rakaði Anton Szandor LaVey af sér hárið, lýsti því yfir að nú væri öld elds hafin og stofnaði The Church of Satan (Barton, 1990, bls. 11). LaVey var titlaður æðsti prestur satanskirkju þessarar en sumir fjölmiðlar fóru fljótt að nefna hann hinn svarta páfa (Barton, 1990, bls. 15). Af hverju hann var kallaður það fylgir ekki sögunni en kannski það hefur það valdið meiri hneykslun og selt fleiri tölublöð. Eflaust hafa einhverjir kaþólikkar frussað kaffinu út úr sér við að sjá nafn síns heittelskaða höfðingja skrumskælt á þennan hátt. Satanskirkjan á ekki deild hér á landi en fjöldi greina hefur verið skrifaður í íslenskum dagblöðum þar sem meðal annars hefur verið fjallað um satanisma þann sem LaVey
boðaði í lifanda lífi og kirkju hans. Eins og búast má við þá hafa greinarnar verið jafn mismunandi og höfundarnir á bakvið þær. Sumir hafa skoðað LaVey og sköpunarverk hans og fjallað um þau á þann máta að djöfladýrkunarstimpillinn er þveginn af þeim gamla (Eva Pálsdóttir, 1997, bls. 9). Aðrir hafa hins vegar gert lítið úr honum og hans skrifum. Í augum sumra eru satanistar ekkert annað en unglingar í uppreisn, „djöfladýrkendur eru nefnilega upp til hópa vitleysingar sem halda að þeir verði voða töff með því að tengja sig djöflinum“ (Þórarinn Þórarinsson, 2006, bls. 50).
Picture
Anton Szandor LaVey, fyrrum æðsti prestur The Church of Satan, með nokkrum vinum á góðri stund.
​Kannski finnst einhverjum það vera óþarfa sleggjudómur en gæti verið réttlætanlegur þegar lesið er viðtal sem birtist í tímaritinu Samúel árið 1991. Þar ræddi Guðmundur Sigurfreyr Jónsson við æðsta prest satanskirkju á Íslandi þar sem hann lýsir hömlulausu kynlífi undir tónum hljómsveitarinnar Inferno 5 og svörtum messum í kirkju (Guðmundur Sigurfreyr Jónsson, 1991, bls. 17–18). Hvort þessir einstaklingar hafi verið í beinum samskiptum við móðurskipið í Bandaríkjunum skal ósagt en menn hafa opinberlega lýst yfir vilja til þess að stofna til slíkra samtaka hér. Til dæmis birti Stöð 2 viðtal árið 2006 við Peter Gilmore, núverandi æðsta prest The Church of Satan, í Kompás þætti í tengslum við þá umræðu (Djöfladýrkendur vilja stofna trúfélag á Íslandi, 2006).
​

Seinni tíma satanismi
​

​Af satanískum samtökum er eflaust stærst núna The Temple of Satan sem býður upp á trúarbragðaref keimlíkan þeim sem The Church of Satan var fræg fyrir. Auk áherslu á andstöðu við ríkjandi trúarbrögð er pólitík blandað inn í og í stað þess að standa á hliðarlínunni hafa þau reynt að hafa áhrif á breytingar í nærumhverfi sínu í Bandaríkjunum (Sif Sigmars, 2020, bls. 16). Þessi atorka safnaðarins virðist hafa smitast hingað til lands því ekki er langt síðan að Íslendingur reyndi að koma af stað satanískum söfnuði hér á landi (Máni Snær Þorláksson, 2022). Þó að ekkert hafi heyrst af því hvort þær áætlanir hafi náð einhverjum árangri er fylgisfólk þessara samtaka greinilega að finna hér.
​

Fordómar eða skoðanir?
​

​Fólk hefur mismunandi skoðanir á þessum samtökum. Sumum finnst þetta dularfullt, öðrum sérvitringslegt, stórfurðulegt, áhugavert eða spennandi. Þetta sýnir þó að áhugi okkar Íslendinga á hinu framandi og óvenjulega er mikill. Við sækjum í það sem er ókunnugt og óhefðbundið. Hvort sem fólk trúir á æðri verur, ævaforna meistara, helvíska djöfla eða heilandi
gyðjur, þá er það heillandi og spennandi að fylgjast með því hvernig nýir straumar koma inn í samfélagið og hvort þeir hafi einhver áhrif á það. Vekja þeir fólk til umhugsunar um það sem betur má fara eða hrekja þeir okkur óttaslegin aftur til baka?
Þetta skapar fjölbreytni í samfélagi okkar og möguleika á að hafa mikil áhrif á það. Ef það gerist að áhrif þeirra vari stutt þá gefur það okkur að minnsta kosti eitthvað til þess að tala um á meðan varir.

Heimildaskrá
​

​Alexandra Diljá Guðlaugsdóttir. (2008, 11. mars). Wicca en ekki djöfladýrkandi.
Fréttablaðið, bls. 15.
Árni Leósson. (1985, 3. mars). Arfleið sem nornir þekktu og þekkja enn í dag. NT -
Helgarblað, bls. 16. 
Að ganga í Oddfellowregluna. (e.d.). Oddfellowreglan.
https://www.oddfellow.is/is/hvad-er-oddfellow/get-eg-ordid-felagi
Barton, B. (1990). The Church of Satan. A History of the World‘s Most Notorious
Religion. Hell’s Kitchen Productions, Inc.
Djöfladýrkendur vilja stofna trúfélag á Íslandi. (2006, 12. febrúar).
https://www.visir.is/g/200660212029/default
Erla Björg Gunnarsdóttir. (2015, 9. maí). Íslenskar nornir og galdrar þeirra. Vísir.
https://www.visir.is/g/2015887982d/islenskar-nornir-og-galdrar-theirra
Er Reglan fyrir mig? (e.d.). Frímúrarareglan. https://www.frimurarareglan.is/er-reglan-
fyrir-mig/
Eva Pálsdóttir. (1997, 17. júlí). Í upphafi var satan ENGILL. Helgarpósturinn, bls. 9.
Hvað er Reglan (e.d.). Frímúrarareglan. https://www.frimurarareglan.is/hvad-er-
reglan/
Um Regluna. (e.d.). Hin Íslenska Drúídregla af SGDR. https://druid.is/um-regluna/
Upphaf Oddfellowreglunnar. (e.d.). Oddfellowreglan.
https://www.oddfellow.is/is/hvad-er-oddfellow/uphaf-reglunnar
Máni Snær Þorláksson. (2022, 2. febrúar). Íslenskur satanisti opnar sig – „Er
einhverju blóði úthellt í athöfnum ykkar?“. DV.
https://www.dv.is/fokus/2022/02/02/islenskur-satanisti-opnar-sig-er-einhverju-
blodi-uthellt-athofnum-ykkar/
Sif Sigmarsdóttir. (2020, 11. janúar). Mín skoðun. Fréttablaðið, bls. 16.
​

Myndir
​

​Mynd af stúkuheimili Frímúrara Akureyri er fengin af opinni vefsíðu
Frímúrarareglunnar á Íslandi. https://www.frimurarareglan.is/frimurarareglan-
um-allt-land/
Mynd af Anton Szandor Lavey er fengin af opinni vefsíðu The Church of Satan.
https://churchofsatan.com/

Höfundur
​

​Eyvindur Gauti Vilmundarson, meistaranemi í þjóðfræði.

0 Comments



Leave a Reply.

    Kreddur

    ​Allir geta sent inn grein fyrir Kreddur svo lengi sem viðfangsefnið tengist þjóðfræði á einn eða annan hátt.

    Greinar

    December 2028
    June 2026
    May 2026
    October 2025
    February 2025
    January 2025
    December 2024
    November 2023
    August 2023
    May 2023
    April 2023
    September 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    June 2020
    May 2016
    January 2016
    November 2015
    January 2015
    May 2014
    April 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    October 2013
    June 2013
    May 2013
    February 2013

    Flokkar

    All
    ævintýri
    Alþýðulækningar
    Biblían
    Dagbækur
    Efnismenning
    Englar
    Fatnaður
    Galdrar
    Jafnreacutetti
    Jón Árnason
    Kyngervi
    Kynjafræði
    Menningararfur
    Myndmiðlar
    Spíritismi
    Staðalmyndir
    þjóðsagnafræði
    þjóðsagnaverur
    þjóðtrú

    RSS Feed

Proudly powered by Weebly
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband