Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband

Aðalfundur FÞÍ

5/13/2025

0 Comments

 
Aðalfundur Félags þjóðfræðinga á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 27. maí kl. 17:00 á neðri hæðinni á Café Rósenberg.
​
Dagskrá fundar er eftirfarandi:
- Skýrsla stjórnar um liðið starfsár
- Reikningar stjórnar lagðir fram til samþykktar
- Kosningar í stjórn
- Ákvörðun um upphæð árgjalds komandi starfsárs
- Opið fyrir umræður

Samkvæmt lögum félagsins er kosið í eftirfarandi stöður á fundinum: gjaldkera, ritara og annars meðstjórnanda, auk tveggja varamanna. Allir núverandi stjórnarmenn hyggjast gefa kost á sér áfram, en önnur framboð eru velkomin. Þá er einnig kosið í stöður skoðunarmanna reikninga og ritstjórn Kredda. Ef áhugi er á því að bjóða sig fram má gjarnan senda póst á netfangið [email protected].

Laganefnd FÞÍ hefur farið í gegnum lög félagsins og skilað ábendingum sínum. Þar eru ekki lagðar fram neinar efnislegar breytingar á lögunum, en lagðar eru til orðalagsbreytingar í átt að kynhlutlausara máli.

Þetta á við um lagagreinar 2., 3., 5. og 8. Hér fyrir neðan má sjá lagabreytingarnar með uppfærðu orðalagi:

2. gr. Félagar geta orðið:
1. Þau sem lokið hafa háskólaprófi, (BA-prófi hið minnsta), með þjóðfræði sem aðal eða aukagrein.
2. Þau sem hafa háskólapróf í öðrum greinum og stunda þjóðfræðirannsóknir.
3. Önnur sem stjórn telur uppfylla þær kröfur sem gera verður til háskólamenntaðra þjóðfræðinga.

3. gr. Markmið félagsins er að efla þjóðfræðirannsóknir, kynna fræðigreinina, styðja við þjóðfræðikennslu og miðlun fræðanna til almennings. Félagið stuðlar að samvinnu þeirra sem starfa við fagið og gætir hagsmuna þjóðfræðinga. Enn fremur er tilgangur félagsins að efla samstarf íslenskra þjóðfræðinga við erlent fræðafólk á sama sviði og samtök þeirra.

5. gr. Stjórn félagsins skipa fimm aðilar ...

​8. gr. Stofnfélagar Félags þjóðfræðinga á Íslandi.
Öll þau sem skráðu sig í Félag þjóðfræðinga á Íslandi á fyrsta starfsári þess teljast stofnfélagar.
Lagabreytingarnar verða teknar fyrir á aðalfundi FÞÍ þann 27. maí.

Við bendum á að fundurinn er haldinn í beinu framhaldi af viðburði FÞÍ á Landnámssýningunni.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

0 Comments



Leave a Reply.

    Félag þjóðfræðinga á Íslandi

    Hér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected]

    Færslur​

    May 2025
    April 2025
    March 2025
    January 2025
    October 2024
    September 2024
    August 2024
    May 2024
    November 2023
    August 2023
    October 2022
    August 2022
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018

    Flokkar

    All
    Pistill
    Ráðstefnur
    Söfn
    Söfnun
    Viðburðir
    Þjóðfræði
    Þjóðfræðingur Mánaðarins

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband