Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband

Viðburðir framundan

3/6/2025

0 Comments

 
Picture
Framundan eru allskonar fjölbreyttir og skemmtilegir viðburðir framundan hjá Félagi þjóðfræðinga sem okkur langar að deila með ykkur svo þið getið merkt þá í dagbækurnar sem fyrst!  

Þriðjudaginn 11. mars kl. 16:00 ætlar Félag þjóðfræðinga á Íslandi að skella sér á handritasýninguna í Eddu. Sigrún Kristjánsdóttir sýningarstjóri tekur á móti hópnum og segir okkur aðeins frá sýningagerðinni inní fyrirlestrasal áður en við skoðum sýninguna sjálfa. Eftir að við erum búin að skoða sýninguna ætlum við að færa okkur yfir á Stúdentakjallarann og halda spjallinu áfram. Athugið að það þarf að skrá sig hér: https://forms.gle/2e87Y4RTJGHHxMsb6

Þriðjudaginn 25. mars hefjast MA fyrirlestrar svo að nýju en nú í samstarfi við Borgarsögusafn sem við erum ótrúlega spennt fyrir! Fyrst á dagskrá er Ingibjörg Sædís en hún ætlar að kynna rannsóknina sína: Af Koli, Lucy og Lúkasi: Íslensk "hundamenning" í hundrað ár. Viðburðurinn fer fram á Landnámssýningunni kl. 16:00-17:00. Eftir erindið færum við okkur yfir á Rósenberg og höldum spjallinu áfram.

MA fyrirlestrar, þar sem nýlegar MA ritgerðir í þjóðfræði eru kynntar verða mánaðarlega fram á vorið og verða því svipaðir viðburðir í samstarfi við Borgarsögusafn einnig í apríl og maí.

Mánudaginn 7. apríl verðum við með Ethnóbíó í Eddu kl. 16:00, þá verða sýndar nokkrar áhugaverðar og skemmtilegar stuttmyndir sem unnar hafa verið af þjóðfræðingum og þjóðfræðinemum. Höfundar myndanna verða einnig á staðnum og geta svarað spurningum. Nánari upplýsingar um myndarnar koma þegar nær dregur og eftir áhorfið ætlum við svo auðvitað að rölta yfir á Stúdentakjallarann til að spjalla og halda áfram að hafa gaman.

Fimmtudaginn 15. maí ætlum við í þjóðfræðigöngu með Einari Skúlasyni MA nema í þjóðfræði. Þetta verður létt og skemmtileg ganga (á milli 1-2 klst) með þjóðlegum fróðleik og fjöri. Gönguleiðin verður í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og verður ákveðin út frá veðri. Við stefnum svo á að hafa grillpartý eftir gönguna (fyrir göngugarpa og aðra) ef veður leyfir. Nánari upplýsingar um þetta koma einnig þegar nær dregur.  

Í maí fer aðalfundur félagsins einnig fram en til hans verður boðað með tveggja vikna fyrirvara, eins og kveðið er á um í lögum félagsins. Í kjölfar aðalfundarins hefur svo jafnan verið einhver skemmtun, spjall, gleði og gaman.

Nú styttist líka í landsbyggðarráðstefnu, en hún mun fara fram í Þingeyjarsveit 26.-28. september 2025, í skipulagsnefnd eru Anna Karen Unnsteins og Sigurlaug Dagsdóttir og hlökkum við mikið til! Sent verður út kall eftir erindum snemma í apríl og hlökkum við til að segja ykkur betur frá því.

Endilega fylgist með félaginu á Facebook síðu þess og við hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest í vor!
0 Comments

    Félag þjóðfræðinga á Íslandi

    Hér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected]

    Færslur​

    April 2025
    March 2025
    January 2025
    October 2024
    September 2024
    August 2024
    May 2024
    November 2023
    August 2023
    October 2022
    August 2022
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018

    Flokkar

    All
    Pistill
    Ráðstefnur
    Söfn
    Söfnun
    Viðburðir
    Þjóðfræði
    Þjóðfræðingur Mánaðarins

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband