Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband

Styrkumsóknir fyrir ráðstefnuferðir sumarið 2025

4/23/2025

0 Comments

 
Félag þjóðfræðinga á Íslandi auglýsir styrki til ráðstefnuferða sumarið 2025

Félag þjóðfræðinga fékk fyrir þremur árum styrk eyrnamerktan ráðstefnuferðum þjóðfræðinga og þjóðfræðinema. Veittir verða ferðastyrkir fyrir tvær þjóðfræðiráðstefnur sumarið 2025, til ferða á SIEF sem fer fram 3.-6. júní í Aberdeen og Norræna þjóðfræðiþingið sem fer fram 11.-14. júní í Turku.

Styrkurinn er til niðurgreiðslu á ráðstefnugjöldum. Styrkhæf eru þau sem hafa ekki hlotið aðra styrki til ráðstefnunnar (að undantöldum niðurgreiðslu frá stéttarfélagi), eða fá ferðina greidda á annan hátt.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí.

Þrír fulltúar frá FÞÍ munu fara yfir allar umsóknir og fá allir umsækjendur svar ekki seinna en 25. maí.

Ef þið hafið einhverjar spurningar má hafa samband við Félag þjóðfræðinga á [email protected]

Umsóknarformið má finna hér
0 Comments

Kallað eftir erindum á Landsbyggðarráðstefnu

4/23/2025

0 Comments

 
Picture
Óskum eftir ágripum fyrir Landsbyggðarráðstefnu FÞÍ 2025 í Þingeyjarsveit sem haldin verður 26.-28. september!

Þau sem hafa hug á að halda erindi eru beðin um að senda inn titil og stutt ágrip (200-300 orð) á netfangið [email protected] til og með 15. maí. Farið verður yfir ágripin og höfundum svarað eigi síðar en 30. maí

Þema ráðstefnunar er Umrót. Yfirskriftin vísar til endurskoðunar og endursköpunar sem hreyfir við okkur, rótar í veruleikanum á einhvern hátt og breytir því hvernig við hugsum um umhverfi okkar. Þjóðfræðingar rannsaka jafnan breytingar, hvað veldur umróti og hvað það hefur í för með sér. Stundum leiða rannsóknir þjóðfræðinga líka til ákveðins umróts, hlutverk þjóðfræðinga er meðal annars að rýna í hversdaginn að fornu og nýju, og við það mótast oft ný sjónarhorn á viðfangsefni rannsóknanna sem leiða til breytinga á því hvernig við hugsum um þau. Oft fer lítið fyrir umrótinu í fyrstu en seinna meir sjást áhrif þess í breyttu viðhorfi til fortíðar og samtíðar.

Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnuna sjálfa í maí. Ráðstefnan mun fara fram á gistihúsinu Narfastöðum en þau bjóða gestum uppá veglegan afslátt af gistingu yfir ráðstefnuhelgina.
0 Comments

    Félag þjóðfræðinga á Íslandi

    Hér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected]

    Færslur​

    April 2025
    March 2025
    January 2025
    October 2024
    September 2024
    August 2024
    May 2024
    November 2023
    August 2023
    October 2022
    August 2022
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018

    Flokkar

    All
    Pistill
    Ráðstefnur
    Söfn
    Söfnun
    Viðburðir
    Þjóðfræði
    Þjóðfræðingur Mánaðarins

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband