|
Að þessu sinni mun Landsbyggðarráðstefna Félags þjóðfræðinga á Íslandi fara fram í Þingeyjarsveit helgina 26.-28. september.
Skráning fer fram hér: forms.gle/H5CUr6ydsN8LVWR67 Ráðstefnugjaldið að þessu sinni er: 4000 kr. fyrir meðlimi FÞÍ og nemendur í þjóðfræði og 6000 kr. fyrir aðra ráðstefnugesti. Innfalið í gjaldinu er hádegismatur og kaffi á laugardag, kvöldmatarhlaðborð á laugardeginum, rútuferð, safnaheimsóknir og önnur skemmtun. Einnig er hægt að skrá sig einungis á málstofurnar á laugardeginum en þá er gjaldið 2.500 kr. með hádegismat. Hægt er að skrá sig á alla dagskránna til og með föstudagsins 12. september, skráning einungis í málstofur er opin lengur. Dagskrá: Föstudagur 18:00 Móttaka, setning ráðstefnunnar og fordrykkur 19:30 Kvöldmatur (ekki innifalið í ráðstefnugjaldi) 21:00 Skemmtun frameftir kvöldi Laugardagur 8:00-9:00 Morgunmatur 9:00-10:40 Málstofa I: Umrót Náttúru
11:00-12:20 Málstofa II: Umrót sagna
13:00-14:40 Málstofa III: Umrót menningar
15:00-16:20 Málstofa IV: Umrót sköpunar
17:35-18:20 Heimsókn og leiðsögn í Hraunsrétt 18:30-19:15 Heimsókn á persónulega safnið 20:00 Glæsilegt kvöldmatarhlaðborð á Narfastöðum 21:00 Tónlistarbingó og fjör Sunnudagur 8:00-10:00 Morgunmatur 11:00 Kveðjustund! Ath. Landsbyggðarráðstefnunefnd hefur fengið 25% afslátt í jarðböðin fyrir ráðstefnugesti fyrir þau sem hafa áhuga á að nýta sér það á sunnudeginum Það er Félag þjóðfræðinga á Íslandi sem að stendur að ráðstefnunni í samstarfi við Menningarmiðstöð Þingeyinga og Önnu Karen Unnsteins og Sigurlaugu Dagsdóttur sem halda utan um skipulagið í samstarfi við stjórn FÞÍ. Til að greiða ráðstefnugjaldið skal millifæra á Félag þjóðfræðinga á Íslandi og senda kvittun á [email protected]. Kt. 630299-3149 Rkn. 0137-26-145667 Við viljum einnig benda á að það borgar sig að bóka gistingu snemma til að tryggja sér öruggt pláss fyrir þessa helgi! Ráðstefnan sjálf fer fram á gistihúsinu Narfastöðum og höfum við fengið sérstakt tilboð í gistinu: Gisting í tveggja manna herbergi í tvær nætur m. morgunmat: 22.000 kr. ( á mann) Gisting í einstaklingsherbergi í tvær nætur m. morgunmat: 32.000 kr. Til að bóka gistingu á Narfastöðum má senda tölvupóst á [email protected], einnig er hægt að hringja í síma 464-3300, en ekki er hægt að bóka í gegnum bókunarsíður líkt og booking.com þar sem við höfum tekið allt húsið frá. Hlökkum til að sjá ykkur
0 Comments
|
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected] Færslur
September 2025
|