Útskriftarár: 1995 með BA í þjóðfræði og sagnfræði sem aukagrein og 2006 með MA próf í þjóðfræði. Ég var viðstaddur fyrri útskriftina, Valdimar Tr. Hafstein útskrifaðist á sama tíma. Svo var gríðarlegt partí heima hjá honum um kvöldið.
Lokaritgerð/ir: BA-ritgerðin mín heitir: Að hefna sín dauður, ef það hefst ekki fyrr. Trú á afturgöngur og hefndin í íslenskum draugasögnum. Ég man ekki lengur hvað MA-ritgerðin heitir, en hún var um förufólk. Ég skrifaði hjá Jóni Hnefli og Terry Gunnell. Þeir eru snillingar. Mæli með þeim. Fyrsta starf eftir útskrift og hvað ertu að gera núna? Áður en ég kláraði BA-námið var ég kominn á kaf í vinnu við allskonar þjóðfræðiverkefni, m.a. nýsköpunarverkefnið Ferðaþjónusta & þjóðmenning sem ég vann að á tímabilinu 1995-1998. Svo var ég líka að gaufast í MA-námi í sagnfræði þessi sömu ár, en flosnaði svo upp úr því og stofnaði fyrirtækið Sögusmiðjuna sem vann að verkefnum tengdum sögu og þjóðfræði. Sögusmiðjan er ennþá til. Samhliða var ég svo að aulast við stundakennslu við HÍ, kenndi vinnulag í þjóðfræði og mannfræði, námskeið um íslenska sjávarhætti og svoleiðis krassandi stöff. Seinna varð ég menningarfulltrúi Vestfjarða í næstum áratug og núna hef ég síðustu 2 árin verið verkefnastjóri hjá Rannsóknasetri HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu. Það er skemmtileg vinna sem ég mæli með. Í þeirri vinnu er ég núna að brasa við að færa út kvíarnar og koma á laggirnar fjarvinnslustöð á Hólmavík við skráningu menningararfs. Hver eru þín helstu áhugamál? Þjóðfræðigrúsk er ofarlega á blaði og áhugaleiklistin er mér líka afskaplega mikilvæg og hugleikin. Mig dreymir um að slá í gegn. Ég myndi gera næstum hvað sem er. Svo skoða ég fugla og fer í gönguferðir á sumrin og tek mikið af myndum. Í vinnunni finnst mér skemmtilegast að lesa eldgamlar og illa skrifaðar dagbækur. Svo finnst mér gaman að setja upp alls konar sögusýningar, halda viðburði, taka þátt í gleðskap og vera með í hugmyndavinnu með góðu fólki. Mér finnst líka brjálæðislega áhugavert að fylgjast með tölulegum upplýsingum frá Hagstofu Íslands um byggðaþróun í landinu. Svo spila ég bridge af og til. Hefurðu einhverja hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? Held ekki, alla vega man ég ekki eftir mörgu slíku. En ég man heldur ekki margt þessa dagana. Það var samt eitt, ég vildi ekki undirbúa heimkomu barnanna minna af fæðingadeildinni, áður en þau kæmu heim. Vildi ekki setja upp vöggu eða gera herbergið klárt og svoleiðis hluti, fyrr en barnið væri mætt á staðinn.
0 Comments
Fyrsta starf eftir útskrift og hvað ertu að gera núna?
Deildarstjóri á leikskóla, síðan blaðamaður, ritstjóri, kennari og bóndi. Hver eru þín helstu áhugamál? Helstu áhugamál eru líklega sjálfbær búskapur og líferni og fólk. Allt sem fólk gerir, af hverju það gerir það og hvernig það reynir að bjarga sér, búa sér til sitt líf og heim með það sem það hefur. Hefurðu einhverja hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? Ég myndi aldrei grafa á álagabletti. Og ég er dauðhrædd við drauga.. Fyrsta starf eftir útskrift?
Ég vann í hlutastarfi sem móðurmálskennari í Malmö í Svíþjóð í eina önn. Síðan sótti ég um fullt af styrkjum fyrir alls konar verkefnum. Það vildi svo til að ég fékk þá nánast alla. Nú hef ég mig alla við til að lenda ekki undir neinum af snjóboltunum sem ég rúllaði af stað í upphafi árs og eru nú orðnir risastórir. Sendið mér styrk, kæru vinir! (Ekki fjárstyrk, andlegan styrk!) Hvað ertu að gera núna? Ég er tónlistarkona og vinn hörðum höndum að því að klára mína fyrstu sólóbreiðskífu undir nafninu rauður. Samhliða því starfa ég að uppbyggingu alþjóðlega, femíníska kollektívsins/stórveldisins Synth Babes, með höfuðstöðvar í Malmö. Markmiðið er að stuðla að meiri fjölbreytni og kynjajafnrétti innan raftónlistar, sem og almennt hvað varðar tækniþróun og nýsköpun í tónlistarbransanum. Við skipuleggjum t.d. tónlistarhátíðir og vinnusmiðjur og tökum þátt í alls konar spennandi samstarfsverkefnum. Og búum til tónlist! Samhliða þessu hef ég fyrir hönd samtakanna Stelpur rokka! verið að stýra stóru alþjóðlegu samstarfsverkefni rokkbúðasamtaka í Evrópu, “Music Empowerment Mobility and Exchange”, styrkt af Erasmus+. Við héldum risastórar alþjóðlegar rokkbúðir fyrir ungmenni í Berlín í sumar, og svo ráðstefnu fyrir skipuleggjendur í Belgrad í haust. Samhliða því er ég að vinna í námsefnisvef fyrir börn sem eru að læra íslensku, í gegn um menningu og samfélag. Það er kannski það þjóðfræðilegasta sem ég er að gera um þessar mundir. En í byrjun næsta árs ætla ég að skella í eina eða tvær greinar upp út meistararitgerðinni minni og fara á ráðstefnu í Santiago de Compostela! Hver eru þín helstu áhugamál? Flest allt hérna að ofan! En tónlist er líf mitt og yndi, og ég elska hljóðgervla og tónlistarforritið Ableton Live. Hef líka mjög gaman að börnunum mínum tveimur og til allrar hamingju elska þau líka tónlist. Við syngjum mikið og dönsum um eldhúsgólfið, sænsku nágrönnum okkar til ánægju og yndisauka. Horfum samt líka mjög mikið á Netflix. Hef líka áhuga á náttúru og útivist, og sakna íslenskrar náttúru, og svei mér þá jafnvel veðráttu, mjög mikið. Hefurðu einhverja hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? Nei. Í lífi mínu er engin svoleiðis regla, eintóm ringulreið og kaos. Þykist samt stundum hafa hjátrú til að virka dularfull og töff, en gleymi jafnóðum hvað það var.
Fyrsta starf eftir útskrift?
Meðfram því að sækja um heillandi störf sem áttu sér snertifleti við þjóðfræðina skrifaði ég greinar í Kvennablaðið og hófst handa við að skrifa bækur. Hvað ertu að gera í dag? Þessa dagana er ég að byrja að máta við mig starfsheitið rithöfundur og er álíka feimin við þann titil eins og lærdómstitilinn þjóðfræðingur fyrst eftir útskriftina úr grunnnáminu. Ætli það gildi ekki um þessa fínu titla, eins og nöfnin okkar, að við þurfum tíma til að máta þau við okkur og kannski vaxa upp í þau? Mínar fyrstu bækur eru nú nýlega komnar út, barnabókin Jólasveinarannsóknin og skáldsagan Gríma, og meðfram því að fylgja þeim úr hlaði vinn ég að handritum sem vonandi verða að bókum á næstu árum. Hver eru þín helstu áhugamál? Bóklestur hefur alltaf verið mér mikilvægur og það minnkar ekki með aldrinum. Mér finnst fátt betra en hlamma mér niður með góða bók og það sakar ekki að hafa súkkulaðirúsínur í seilingarfjarlægð. Út af þessum sömu súkkulaðirúsínum reyni ég líka að vera hæfilega dugleg að hreyfa mig, skelli mér í ræktina eða í göngutúr, helst á flatlendi, en maðurinn minn dregur mig stundum með sér eitthvert upp í móti. Þar er útsýni oft gott. Ég á stóra fjölskyldu og undir þessum lið væri sígilt að svara því til að samvera með fjölskyldunni væri aðaláhugamálið (ásamt ferðalögum, (þá líklega með fjölskyldunni?)) og hvort sem er við hæfi að skilgreina fjölskylduna sem áhugamál eða ekki þá er mér að minnsta kosti mikilvægt að verja tíma með fólkinu mínu. Sonur minn sem situr hérna við hlið mér bætir því við að ég hafi líka mikinn áhuga á að skutla og að taka til. Þannig að þar hafiði það :) Hefurðu einhverja hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? … mjög margar og sumar þeirra sérkennilegar; svo sérkennilegar að þær eiga kannski fremur skylt við áráttuhegðun en „heilbrigða“ hjátrú. Í mínu daglega lífi er fjölmargt sem ég hef tamið mér að gera af því að ég tel það vissara - og fyrir því eru rök sem ég átta mig á að eru sérviskuleg en eru mér samt mikilvæg og veita vissa öryggiskennd. Svipað eins og að leggja inn gott orð eða biðja bænar. Af þekktum hjátrúarhefðum má nefna að mér þykja mánudagar óhentugir til ýmissa hluta, ég geng ekki undir stiga og breyti fyrirhugaðri göngu-eða akstursleið ef svartur köttur þverar veginn. Líka ef hann skáskýtur sér. Og mögulega líka þó hann sé alls ekki svartur… til að vera viss, sjáiði!
Hvað var fyrsta starfið þitt eftir útskrift?
Ég gerðist aðstoðarkennari við HÍ þegar ég var enn í MA-námi. Ég hef síðan þá verið að kenna. Annað starf sem tók við eftir útskrift var að selja ís á Borough Market í London sem er matarmarkaður. Því miður er ástandið þannig í London að flestir sem voru að vinna við að selja osta og ís á þessum matarmarkaði voru með meistara- eða doktorspróf úr hug- eða félagsvísindum. Hvað ertu að gera í dag? Í dag er ég lektor við Listaháskóla Íslands og kenni tvo námskeið á haustönn: námskeið um sögur og sviðsetningar, og annað um listir og sjálfsmyndir. Ég er einnig að leiðbeina fjórum BA-ritgerðasmiðum sem allir eru að læra hönnun. Þau eru að skrifa um tyggjóklessur, sjónarhorn mannsins á náttúruna, dyra- og póstkassamerkingar og húmor í hönnun. Þetta eru allt verkefni þar sem þjóðfræðin kemur að góðu gangi. Í dag er ég samt aðallega að bíða eftir að bók mín og ljósmyndarans Svölu Ragnardóttir komi úr prentun. Hún heitir Krossgötur og er um álfatrú, alfabyggðir og bannhelga staði víða um landi. Við höfum verið að vinna í henni í fjögur ár. Það hefur verið mjög huggulegt að fá að dvelja svona lengi með álfum og álfasteinum, sérstaklega þegar ástandið er svona svart varðandi loftlagsmálin, þá getur þjóðfræðingur að minnsta kosti beitt sér fyrir því að óspillt náttúra fái að halda sér. Líklegast væri best ef öll óspjölluð náttúra væri séð sem bannhelg. Hver eru þín helstu áhugamál? Mitt helsta áhugamál er að drekka kaffi á Pallett kaffihúsinu í Hafnarfirði á meðan ég tek mér góðan tíma til að grúska í einhverju skrýtnu: gömlum fréttum eða bókum, timarit.is og ismus.is eru í miklu uppáhaldi. Svo finnst mér reyndar mjög gaman að vera með fjölskyldunni minni og fara með börnunum á róló, í sund eða í Fjölskyldugarðinn. Kannski finnst einhverjum það hljóma eins og lygi, en mér finnst til dæmis mjög gaman að róla aftur, nú á gamals aldri. Er einhver hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? Ég gæti ekki raskað ró álfa og ég á mjög erfitt með að stíga á grafir, þótt það sé stundum erfitt að forðast slíkt, eins og til dæmis á Fógetatorgi eða öðrum gömlum grafstöðum. Sagt er að London sé í raun einn stór kirkjugarður. Þannig að ... hvað veit maður? |
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á felagthjodfraedinga@gmail.com Færslur
November 2023
|