Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband

Þjóðfræði fyrirlestrar - Selfoss og sundlaugar

11/15/2018

0 Comments

 
Picture
Fimmtudaginn 22. nóvember munu tveir þjóðfræðingar, Katrín Dröfn Guðmundsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir, kynna efni nýlegra MA ritgerða sinna í Odda 106 í Háskóla Íslands kl. 17:15-18:30. Eins og við vitum öll eru ritgerðir í þjóðfræði einstaklega áhugaverðar og skemmtilegar. 

​
Eftir fyrirlestrana munum við svo fara á Stúdentakjallarann og fá halda fjörinu áfram. Hlökkum til að sjá ykkur! ​

Katrín Dröfn Guðmundsdóttir
Áhrif sundlauga: líðan, upplifun, hegðun
Í erindinu fjalla ég um rannsókn og efni lokaritgerðar sem ég skrifaði í meistaranáminu mínu í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Efnistök ritgerðarinnar eru áhrifaþættir á líðan, upplifun og hegðun þeirra sem sækja sundlaugar á Íslandi. Sundlaugar hér á landi þjóna mikilvægu hlutverki í lífi þeirra sem sækja laugarnar reglulega. Afmarkaði ég rannsóknina við þann hóp sem fer í sund til að vera einn með sjálfum sér og upplifa oft á tíðum endurnærandi áhrif. Mun ég gera grein fyrir rannsóknarferlinu sem og lýsa helstu þemum ritgerðarinnar.

Vilhelmina Jónsdóttir
Meistararitgerðin „Að fortíð skal hyggja ef frumlegt skal byggja – nýtt miðbæjarskipulag á Selfossi” fjallar um tilvist fortíðar í samtímanum. Ritgerðin byggir á eigindlegri rannsókn, aðallega djúpviðtölum sem tekin voru á tímabilinu október 2016 til desember 2017. Um er að ræða tilviksrannsókn þar sem nýju miðbæjarskipulagi á Selfossi eru gerð skil. Í tillögunni um nýjan miðbæ er fyrirhugað að endurgera ríflega þrjátíu hús sem áður stóðu víðs vegar um landið en brunnu, voru rifin eða eyðilögðust með öðrum hætti. Viðmælendur vörpuðu ljósi á með hvaða hætti fólk upplifir fortíðina og hvernig tengsl við hana verða til í gegnum úrvinnsluferli merkingarmyndunar. Efnisleg fyrirbæri, líkt og hús, eru ekki nauðsynleg í þessu ferli en geta verið sem tæki eða verkfæri í ferlinu. Fram komu ólík sjónarmið til sanngildis og þess hvort og með hvaða hætti tillagan um nýjan miðbæ á Selfossi ber fortíðinni trúverðugt vitni. Í viðhorfunum birtist mikilvægi þess að húsin sem fyrirhugað er að endurgera hefðu merkingarbæra sögn í hugum íbúa sem og að þau féllu að söguvitund þeirra og þekkingu. Fram kom með hvaða hætti sviðsetning á fortíðinni féll að sjálfsmynd bæjarbúa og hvernig hún hefði áhrif á ímynd bæjarins. Þá kom einnig fram mikilvægi þess að íbúar hefðu möguleika til að hafa áhrif á ákvörðunartöku um uppbyggingu á miðbænum sem og möguleika til áhrifa og umsköpunar.
0 Comments

Þjóðfræði fyrirlestrar á Þjóðarspegli

10/24/2018

0 Comments

 
Picture
Þjóðarspegillinn, ráðstefna Háskóla Íslands í félagsvísindum, verður haldinn í 19. skipti núna föstudaginn 26. október.  Ráðstefnan er haldin í október ár hvert. Um 170 fyrirlestrar eru fluttir í u.þ.b. 45 málstofum sem fjalla um það sem efst er á baugi í rannsóknum á sviði félagsvísinda á Íslandi. Frítt er á alla fyrirlestra ráðstefnunar.

Hægt er að nálgast dagskrána í heild sinni með því að ýta HÉR

Við höfum einnig tekið saman nokkrar áhugaverðar málstofur þar sem þjóðfræðingar halda erindi: 
0 Comments

20 ÁRA AFMÆLISFÖGNUÐUR FÉLAGS ÞJÓÐFRÆÐINGA Á ÍSLANDI

10/16/2018

0 Comments

 
Picture
Laugardaginn 27. október næst komandi verður blásið til gríðarlegrar veislu í tilefni af 20 ára afmæli Félags þjóðfræðinga á Íslandi. Veislan verður haldin í Kornhúsinu í Árbæjarsafni og hefst kl. 18:00 og stendur fram á nótt.
Þetta verður heljarinnar fjör sem að ENGINN má missa af. Það er alltaf gaman að hitta þjóðfræðinga og skemmta sér saman og það verður líka nóg á dagskránni. 
​Meðal annars:

- Gómsætar veitingar og drykkir. 
- Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason treður upp. 
- Einbreið brú. 
- Gamanmál, ræður og allskonar þjóðfræðisprell! 

Miðinn kostar 3500 kr. fyrir meðlimi félagsins og 4500 kr. fyrir aðra.
Leggja þarf inn á Félag þjóðfræðinga til að greiða fyrir miðann:
Kennitala: 630299 - 3149
Reikningsnúmer: 0137-26-145667

Skráning fer fram HÉR
0 Comments
Forward>>

    Félag þjóðfræðinga á Íslandi

    Hér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected]

    Færslur​

    September 2025
    August 2025
    May 2025
    April 2025
    March 2025
    January 2025
    October 2024
    September 2024
    August 2024
    May 2024
    November 2023
    August 2023
    October 2022
    August 2022
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018

    Flokkar

    All
    Pistill
    Ráðstefnur
    Söfn
    Söfnun
    Viðburðir
    Þjóðfræði
    Þjóðfræðingur Mánaðarins

    RSS Feed

Proudly powered by Weebly
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband