Óskum eftir ágripum fyrir Landsbyggðarráðstefnu FÞÍ 2025 í Þingeyjarsveit sem haldin verður 26.-28. september!
Þau sem hafa hug á að halda erindi eru beðin um að senda inn titil og stutt ágrip (200-300 orð) á netfangið [email protected] til og með 15. maí. Farið verður yfir ágripin og höfundum svarað eigi síðar en 30. maí Þema ráðstefnunar er Umrót. Yfirskriftin vísar til endurskoðunar og endursköpunar sem hreyfir við okkur, rótar í veruleikanum á einhvern hátt og breytir því hvernig við hugsum um umhverfi okkar. Þjóðfræðingar rannsaka jafnan breytingar, hvað veldur umróti og hvað það hefur í för með sér. Stundum leiða rannsóknir þjóðfræðinga líka til ákveðins umróts, hlutverk þjóðfræðinga er meðal annars að rýna í hversdaginn að fornu og nýju, og við það mótast oft ný sjónarhorn á viðfangsefni rannsóknanna sem leiða til breytinga á því hvernig við hugsum um þau. Oft fer lítið fyrir umrótinu í fyrstu en seinna meir sjást áhrif þess í breyttu viðhorfi til fortíðar og samtíðar. Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnuna sjálfa í maí. Ráðstefnan mun fara fram á gistihúsinu Narfastöðum en þau bjóða gestum uppá veglegan afslátt af gistingu yfir ráðstefnuhelgina.
0 Comments
Leave a Reply. |
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected] Færslur
April 2025
|