Umsókn fyrir landsbyggðarráðstefnu Félags þjóðfræðinga haustið 2025 Haustið 2025 ætlar Félag þjóðfræðinga að halda landsbyggðarráðstefnu. Líkt og undanfarin ár langar okkur að fá þjóðfræðinga á landsbyggðinni okkur til aðstoðar og búa til landsbyggðarráðstefnunefnd sem myndi starfa með Félagi þjóðfræðinga við undirbúning, skipulag, samskipti á svæðinu og styrkumsóknagerð. Við mælum því með að að minnsta kosti tveir þjóðfræðingar sem eru tilbúnir til að taka áfram þátt í undirbúningsvinnu með okkur standi að uppástungu eða umsókn um stað fyrir ráðstefnuna. Umsóknarfresturinn er til 22. september og við hvetjum ykkur til að senda okkur tölvupóst á [email protected] og hafa samband ef þið eruð með einhverjar spurningar varðandi fyrirkomulagið og einnig til að skila inn uppástungum. Gott væri að taka fram:
Mynd frá Landsbyggðarráðstefnu á Egilsstöðum 2021
0 Comments
Leave a Reply. |
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected] Færslur
October 2024
|