Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband

Spennandi viðburðir framundan

10/7/2024

0 Comments

 
Picture
Nú er aldeilis margt á döfinni hjá Félagi þjóðfræðinga sem okkur langaði að deila með ykkur. 

Föstudaginn 11. október verður Hrekkjavökufjör sem hefst á draugagöngu kl. 20:00 í Víkurgarði (Fógetagarðinum við Skúlabar). Þjóðfræðingurinn Björk Bjarnadóttir sér um draugasögurnar og eftir gönguna ætlar hópurinn svo í sal í Gamla garði þar sem fjörið heldur áfram og boðið verður uppá smá drykki og gotterí, en mjög þyrstum er ráðlagt að taka með nesti.

Föstudaginn 18. október er svo á dagskránni heimsókn á glænýja örverusýningu á Hönnunarsafni Íslands kl. 16:00 og svo í beinu framhaldi æsispennandi súrdeigsmatarboð með Ragnheiði Maísól Sturludóttur þjóðfræðing og sýningarstjóra. Við vekjum athygli á því að nauðsynlegt er að skrá sig á þennan viðburð og takmörkuð pláss í boði, skráning fer fram hér: https://forms.gle/eyf4x4Xs9RJRmCF97 

Þá er á döfinni eftirpartý fyrir Þjóðarspegilinn er hann fer fram þann 1. nóvember, nánari upplýsingar um það koma þegar nær dregur. 

Það er einnig gaman að segja frá því að búið er að velja stað og dagsetning fyrir næstu landsbyggðarráðstefnu, en hún mun fara fram í Þingeyjarsveit 26.-28. september 2025, í skipulagsnefnd eru Anna Karen Unnsteins og Sigurlaug Dagsdóttir og hlökkum við mikið til!

Endilega fylgist með félaginu á Facebook síðu þess og við hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest í vetur!

0 Comments



Leave a Reply.

    Félag þjóðfræðinga á Íslandi

    Hér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected]

    Færslur​

    May 2025
    April 2025
    March 2025
    January 2025
    October 2024
    September 2024
    August 2024
    May 2024
    November 2023
    August 2023
    October 2022
    August 2022
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018

    Flokkar

    All
    Pistill
    Ráðstefnur
    Söfn
    Söfnun
    Viðburðir
    Þjóðfræði
    Þjóðfræðingur Mánaðarins

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband