Félag þjóðfræðinga á Íslandi auglýsir styrki til ráðstefnuferða sumarið 2025
Félag þjóðfræðinga fékk fyrir þremur árum styrk eyrnamerktan ráðstefnuferðum þjóðfræðinga og þjóðfræðinema. Veittir verða ferðastyrkir fyrir tvær þjóðfræðiráðstefnur sumarið 2025, til ferða á SIEF sem fer fram 3.-6. júní í Aberdeen og Norræna þjóðfræðiþingið sem fer fram 11.-14. júní í Turku. Styrkurinn er til niðurgreiðslu á ráðstefnugjöldum. Styrkhæf eru þau sem hafa ekki hlotið aðra styrki til ráðstefnunnar (að undantöldum niðurgreiðslu frá stéttarfélagi), eða fá ferðina greidda á annan hátt. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí. Þrír fulltúar frá FÞÍ munu fara yfir allar umsóknir og fá allir umsækjendur svar ekki seinna en 25. maí. Ef þið hafið einhverjar spurningar má hafa samband við Félag þjóðfræðinga á [email protected] Umsóknarformið má finna hér
0 Comments
Leave a Reply. |
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected] Færslur
April 2025
|