Félag þjóðfræðinga á Íslandi var stofnað 30. október árið 1998 í Skólabæ.
Starfsemi félagsins hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár og er markmið félagsins að stuðla enn frekar að þeirri þróun um ókomin ár. Félagið var stofnað með það að markmiði að efla rannsóknir í þjóðfræði og kynna fræðigreinina utan veggja Háskóla Íslands. Eins er félaginu ætlað að styðja við þjóðfræðikennslu í háskólanum og vinna að miðlun fræðanna – innan og utan háskólasamfélagsins.
Félagið er hugsað sem samfélag fyrir útskrifaða þjóðfræðinga og fólk sem stundar rannsóknir með sjónarhorni þjóðfræðinnar. Félagið vinnur auk þess að því að efla samstarf íslenskra þjóðfræðinga við erlenda fræðimenn og samtök og tekur þátt í ráðstefnum innanlands og utan. Eins er mikilvægt að rækta sambandið við nærliggjandi frænd- og frænkugreinar.
Til þess að verða meðlimur í félaginu þarf að senda tölvupóst á netfangið felagthjodfraedinga@gmail.com með nafni og kennitölu og þá mun gjaldkeri senda út greiðsluseðil í heimabanka viðkomandi.