1. gr. Félagið heitir Félag þjóðfræðinga á Íslandi. Lögheimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Félagar geta orðið:
Þeir sem lokið hafa háskólaprófi, (BA-prófi hið minnsta), með þjóðfræði sem aðal eða aukagrein.
Þeir sem hafa háskólapróf í öðrum greinum og stunda þjóðfræðirannsóknir.
Aðrir sem stjórn telur uppfylla þær kröfur sem gera verður til háskólamenntaðra þjóðfræðinga.
3. gr. Markmið félagsins er að efla þjóðfræðirannsóknir, kynna fræðigreinina, styðja við þjóðfræðikennslu og miðlun fræðanna til almennings. Félagið stuðlar að samvinnu þeirra sem starfa við fagið og gætir hagsmuna þjóðfræðinga. Ennfremur er tilgangur félagsins að efla samstarf íslenskra þjóðfræðinga við erlenda fræðimenn á sama sviði og samtök þeirra.
4. gr. Aðalfundur skal haldinn í maí ár hvert og skal hann boðaður með minnst hálfs mánaðar fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Árgjald skal ákveðið á aðalfundi og skulu félagar sjötugir og eldri undanþegnir greiðslu þess. Heimilt er að kjósa heiðursfélaga og skulu þeir undanþegnir árgjaldi. Árgjald í félagið er innheimt árlega, september ár hvert. Gjaldkeri sér um að innheimta árgjald.
5. gr. Stjórn félagsins skipa fimm menn: Formaður, gjaldkeri og ritari auk tveggja meðstjórnenda. Einnig skulu kosnir tveir varamenn. Stjórnarmenn skulu kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn og á eftirfarandi máta: Formann og einn meðstjórnanda skal kjósa á sléttu ári en ritara, gjaldkera og annan meðstjórnanda á oddatölu ári. Varamenn eru kosnir til eins árs. Kosning skal vera skrifleg ef þess er óskað. Þjóðbrók félag þjóðfræðinema við Háskóla Íslands tilnefnir einn áheyrnarfulltrúa í stjórnina með umræðu- og tillögurétt. Á aðalfundi skal stjórn félagsins skýra frá störfum félagsins á liðnu ári og leggja fram endurskoðaða reikninga.
6. gr. Á aðalfundi skulu kosnir tveir endurskoðendur félagsins.
7. gr. Lög þessi taka þegar gildi. Þeim má aðeins breyta á aðalfundi og þurfa að minnsta kosti 2/3 fundarmanna að samþykkja breytingar. Taka skal fram í fundarboði ef lagabreytingar eru á dagskrá.
8. gr. Stofnfélagar Félags þjóðfræðinga á Íslandi. Allir þeir sem skráðu sig í Félag þjóðfræðinga á Íslandi á fyrsta starfsári þess teljast stofnfélagar.