Óskum eftir samstarfi vegna Landsbyggðarráðstefnu Félags Þjóðfræðinga á Íslandi haustið 2023!8/28/2022 Stjórn FÞÍ auglýsir hér með eftir aðilum til samstarfs vegna Landsbyggðarráðstefnu Félags Þjóðfræðinga á Íslandi haustið 2023. Við höfum ákveðið að vegna SIEF vorið 2023 sé hentugast að ráðstefnan fari fram að hausti svo að ráðstefnuþyrstir þjóðfræðingar þurfi síður að velja á milli. Því hefur helgin 23. – 24. september 2023 orðið fyrir valinu sem viðmiðunartímasetning fyrir ráðstefnuna.
Nú óskum við eftir umsóknum frá þjóðfræðingum á landsbyggðinni sem vildu gjarnan fá ráðstefnuna í sína heimahaga. Eftir að valið hefur verið úr umsóknum verður skipuð landsbyggðarráðstefnunefnd sem starfar með stjórn FÞÍ að undirbúningi, skipulagi og styrkumsóknum. Við mælum því með að að minnsta kosti tveir þjóðfræðingar sameinist um umsóknir og séu tilbúnir að taka þátt í undirbúningsvinnu með okkur eftir að staður hefur verið valinn. Umsóknarfrestur er til 16. október 2022. Umsókn skal send í tölvupósti á [email protected]. Hægt er að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna við gerð umsóknar á sama netfang. Á umsókninni þarf eftirfarandi að koma fram: 1. Umsóknaraðilar. 2. Bæjarfélag þar sem ráðstefnan yrði haldin. 3. Aðstaða. Þar er átt við aðstöðu til ráðstefnuhalds og einnig gistimöguleika á svæðinu. 4. Mögulegir styrkveitendur t.d. uppbyggingarsjóðir, styrkir frá sveitarfélagi, fyrirtæki o.fl. 5. Hugmyndir að afþreyingu utan ráðstefnuhalds s.s. safnaheimsóknir, gönguferðir, skemmtiatriði, matur og menning. 6. Vangaveltur um kostnað. Með þökk og tilhlökkun Stjórn FÞÍ
0 Comments
|
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected] Færslur
October 2024
|