Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • 2022-2023
    • Eldri viðburðir
    • Myndir
  • Fréttir
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband

Gleðistund FÞÍ

8/30/2019

0 Comments

 
Sæl verið þið!
Þriðjudaginn 3. september ætlum við í Félagi þjóðfræðinga á Íslandi að
skella okkur á Gleðistund eða Happy hour á Mímisbar á Hótel Sögu kl. 16:00
og fram á rauða nótt (Happy hour er á milli kl. 16-18 og svo aftur kl.
21-23).

Hér má sjá viðburðinn á Facebook.

Þetta er fullkomið tækifæri til að hitta alla aftur, spjalla saman og hafa
gaman!

Vonumst til að sjá sem flesta!
0 Comments

Þjóðfræðingur mánaðarins: Björk Bjarnadóttir

8/20/2019

0 Comments

 
Picture
Nafn: Björk Bjarnadóttir, Umhverfis-þjóðfræðingur.

Útskriftarár: 2000.

Lokaritgerð/ir: Útlit og einkenni djöfulsins í íslenskum þjósögum. M.A ritgerð i Umhverfisfræðum, júní 2005. Goðsögur á stjarnhimni: Stjörnuskoðun og miðlun norrænna goðsagna. 
Fyrsta starf eftir útskrift?
Vann hjá Sögusmiðjunni, við textagerð og rannsóknir, einkar skemmtilegt og gefandi.

Hvað ertu að gera núna?
Núna er ég í fæðingarorlofi, en áður en það byrjaði vann ég í Waldorfskólanum í Lækjarbotnum, sem kennari. Einnig vinn ég sjálfstætt við að fara með fólk í gönguferðir í náttúrunni, segja frá þjóðtrú og sögum sem tengjast umhverfinu. Myndi segja að ég sé sagnakona náttúrunnar. Elska að segja sögur af plöntum, steinum, fuglum og trjám. Einnig segi ég mikið af drauga -og galdrasögum á veturna.

Hver eru þín helstu áhugamál?
Mín helstu áhugamál er móðir jörð og allt sem henni fylgir, miðla skilningi á henni. Hún er allt sem við þurfum og okkur ber skylda til að skilja hana, virða og hugsa vel um. Einnig elska ég að rækta grænmeti og tómata. En það gerum við Tómas Atli Ponzi, maðurinn minn inni í Mofellsdal.


Hefurðu einhverja hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? 
Ég hef eina hjátrú en ég fer alltaf með þessa þulu á áramótunum: Komi þeir sem koma vilja, veri þeir sem vera vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og mínum að meinalausu, Síðan kveiki ég á kertum hér og þar og býð álfana velkomna. Finnst þetta fallegur siður og hjátrú. Að vera þjóðfræðingur er dásamlegt, snertir á flestum sviðum mannlífsins. Takk fyrir mig!
0 Comments

Landsbyggðarráðstefna 2020

8/10/2019

0 Comments

 
Núna í vor ætlar Félag þjóðfræðinga að halda landsbyggðarráðstefnu og okkur langar að prófa nýja aðferð til að velja stað til að heimsækja. Ætlunin er að fá þjóðfræðinga á landsbyggðinni okkur til aðstoðar og búa til landsbyggðarráðstefnunefnd sem myndi starfa með Félagi þjóðfræðinga við undirbúning, skipulag, samskipti á svæðinu og styrkumsóknagerð. Við mælum því með að að minnsta kosti tveir þjóðfræðingar sem eru tilbúnir til að taka áfram þátt í undirbúningsvinnu með okkur standi að uppástungu eða umsókn um stað fyrir ráðstefnuna.
 
Umsóknarfresturinn er til 30. ágúst og við hvetjum ykkur til að senda okkur tölvupóst á felagthjodfraedinga@gmail.com og hafa samband ef þið eruð með einhverjar spurningar varðandi fyrirkomulagið og einnig til að skila inn uppástungum.
Gott væri að taka fram:
  1. Umsóknaraðila
  2. Bæjarfélag þar sem ráðstefnan yrði haldin
  3. Aðstaða
    1. Nánari staðsetning, salur, hvar væri hægt að halda ráðstefnuna sjálfa
    2. Upplýsingar um gistimöguleika á svæðinu
  4. Styrkmöguleikar á svæðinu (uppbyggingasjóðir, styrkir frá sveitarfélaginu, fyrirtækjum o.fl.)
  5. Hugmyndir af afþreyingu eða uppbrot á ráðstefnunni (gætu t.d. verið safnaheimsóknir, gönguferðir, skemmtiatriði, matur, menning eða hvað sem okkur dettur í hug)
  6. Vangaveltur um kostnað
0 Comments

    Félag þjóðfræðinga á Íslandi

    Hér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á felagthjodfraedinga@gmail.com

    Færslur​

    October 2022
    August 2022
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018

    Flokkar

    All
    Pistill
    Ráðstefnur
    Söfn
    Söfnun
    Viðburðir
    Þjóðfræði
    Þjóðfræðingur Mánaðarins

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • 2022-2023
    • Eldri viðburðir
    • Myndir
  • Fréttir
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband