Miðvikudaginn 16. október kl. 17:00 ætlar Félag þjóðfræðinga á Íslandi að fara í hópferð á listasýninguna Andspænis sem að þeir Þrándur Þórarinsson og Hugleikur Dagsson standa fyrir í Gallery Port. Sýningin er innblásin úr íslenskum þjóðsagnaarfi og eitthvað sem að enginn þjóðfræðingur má láta framhjá sér fara. Þrándur Þórarinsson mun hitta okkur á sýningunni og segja aðeins frá henni.
Í lýsingu á sýningunni segir: Í ANDSPÆNIS sækja þeir sína uppáhalds skúrka og skrímsli úr íslenskum þjóðsagnaarfi. Í hverju verki fyrir sig etja þeir saman goðsögnum. Þrándur túlkar það í málverki og Hugleikur í myndasögu. Hér er að finna bardaga eins og Skoffín andspænis Skuggabaldri, Bakkabræður andspænis Lagarfljótsormi og að sjálfsögðu Sæmund Fróða andspænis Kölska. Eftir að við höfum skoðað sýninguna getum við svo fengið okkur sæti á nálægum bar og haldið spjallinu áfram. Hlökkum til að sjá ykkur.
0 Comments
Leave a Reply. |
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected] Færslur
September 2024
|