![]() Kallað er eftir erindum fyrir Landsbyggðarráðstefnuna 2020 sem haldin verður á Egilsstöðum 15.-17. maí. Yfirskrift og þema ráðstefnunnar eru Vegamót (nánari lýsing fyrir neðan). Áhugasamir eru beðnir að senda titil og stutt ágrip (200-300 orð) á netfangið [email protected] fyrir 1. mars næstkomandi. Öllum er frjálst að senda inn erindi og endilega hafið samband ef eru einhverjar spurningar. Félag þjóðfræðinga á Íslandi og Minjasafn Austurlands standa að ráðstefnunni í samvinnu við fleiri aðila. Hlökkum til að sjá ykkur! Þema ráðstefnunnar Yfirskriftin Vegamót vísar til þess að á landsbyggðarráðstefnunni mætist fólk úr ólíkum áttum; fólk frá ólíkum landshornum, fólk úr ýmsum fræðigreinum, nemar á ýmsum stigum í námi, áhuga- og fræðafólk. Þar mætast líka ólík viðfangsefni, hugmyndir, aðferðir og nálganir, fortíð og nútíð og hinir ýmsu krókar og kimar mannlífsins. Vegamót standa líka fyrir hreyfanleika, ferðalög og breytingar. Þegar komið er að vegamótum er venjan að staldra við, horfa í kringum sig, kanna ólíka möguleika og jafnvel líta yfir farinn veg. Svo þarf að ákveða hvort breyta eigi um stefnu eða halda áfram á sömu leið. Yfirskriftin hefur svo einnig skemmtilega tilvísun til staðsetningar ráðstefnunnar á Egilsstöðum en þeir hafa í gegnum tíðina verið nefndir vegamót Austurlands.
0 Comments
Leave a Reply. |
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected] Færslur
January 2025
|