Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband

Yfirlýsing stjórnar FÞÍ til stuðnings Palestínu

11/28/2023

7 Comments

 
Picture
 
Stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi vill koma eftirfarandi á framfæri. Við fordæmum framgöngu og stríðsglæpi ísraelskra stjórnvalda í Palestínu og lýsum yfir fullum stuðningi við palestínsku þjóðina og baráttu hennar fyrir tilverurétti sínum sem frjálsrar þjóðar. Tryggja verður virðingu fyrir grundvallarmannréttindum og mannúðaraðstoð.
 
Þjóðfræði hefur sem fræðigrein átt í viðkvæmu sambandi við stjórnmálasviðið þar sem þjóðfræðiefni og jafnvel fræðimenn innan greinarinnar hafa tengst ógn og ofstæki vissra hópa í gegnum söguna. Sökum þess hefur fræðigreinin oft átt erfitt með að bregðast við aðstæðum sem þessum. Það er okkur, stjórn FÞÍ, hins vegar ljóst að við verðum á einhvern hátt að bregðast við.
 
Það er ekki hægt að standa hjá! Halda verður staðreyndum á lofti og málflutningur sem ýtir undir þá hugmynd að um stríð tveggja jafn sterkra aðila sé að ræða, en ekki þjóðarmorð á palestínsku þjóðinni, firrir Ísrael ábyrgð og gefur ranga mynd af stöðunni. Þær hörmungar sem áttu sér stað í árásum Hamas á Ísrael í síðastliðnum mánuði voru hræðilegar en réttlæta ekki það sem nú á sér stað á Gaza svæðinu. Stjórn FÞÍ hvetur til upplýstrar umræðu. Orðræða sem á sér stað innan háskólasamfélagsins felur í sér vald og við verðum sem þátttakendur í henni að sýna kollegum okkar í Palestínu samstöðu, sýna því fræðafólki sem berst gegn ofbeldi og ofríki stjórnvalda í Ísrael samstöðu og samhug og halda áfram að beita okkur fyrir því að komið verði á varanlegu vopnahléi og lausn fundin á þjáningum palestínsku þjóðarinnar.
 
Stjórn FÞÍ krefst þess að íslensk stjórnvöld fylgi eftir ályktun Alþingis um tafarlaust vopnahlé með skýrum hætti á alþjóðavettvangi. Þær hörmungar sem nú ganga yfir palestínsku þjóðina og hafa gengið yfir hana í áratugi kalla á afdráttarlaus viðbrögð alþjóðasamfélagsins.
 
Sem þátttakendur í fræðasamfélaginu hér á landi og erlendis teljum við það skyldu okkar sem stjórn FÞÍ að mótmæla þeim mannréttindabrotum sem nú eiga sér stað á Gaza og öðrum svæðum í Palestínu.

Við viljum þó taka sérstaklega fram að hér tölum við fyrir okkur sjálf sem stjórnarmeðlimir FÞÍ en ekki fyrir alla félagsmenn FÞÍ!
Vilji félagsfólk okkar styðja við þessa yfirlýsingu geta þau ritað nafn sitt hér undir!
 
Stjórnarmeðlimir FÞÍ eru:  
Anna Karen Unnsteins
Arndís Hulda Auðunsdóttir
Eiríkur Valdimarsson
Rakel Jónsdóttir
Sandra Björg Ernudóttir
Sigurlaug Dagsdóttir
 
​Við hvetjum félagsmenn okkar til að kynna sér eftirfarandi:
 
Yfirlýsing starfsmanna við Háskóla Íslands:
https://fyrirpalestinu.wordpress.com/?fbclid=IwAR0UxgfML91Qf6LxSm_zrgP3xc5BkqlB4TTkV9Ner-Tf7R5lN-WCPzvve6s

Yfirlýsing frá Cultural Anthropology:
https://journal.culanth.org/index.php/ca/catalog/category/war-on-palestine?fbclid=IwAR0GYDnG6ZKkERCyv-5QNZ9NLPgGIvNIiWe1aqHw8LSJkCnIBL2dvHUCh8Y
 
Yfirlýsing frá Birzeit háskóla í Palestínu:
https://www.birzeit.edu/sites/default/files/upload/open_letter_from_birzeit_university.pdf
 
Yfirlýsing frá Landssamtökum íslenskra stúdenta:
https://studentar.is/frettir-og-greinar/2023/11/21/yfirlsing-ls-vegna-strsreksturs-sraelskra-stjrnvalda-palestnu


7 Comments
Dagrún Ósk Jónsdóttir
11/28/2023 08:55:04 am

!

Reply
Særún Lisa Birgisdóttir
11/28/2023 09:29:52 am

.

Reply
Ragnheidur Maisol Sturludottir
11/28/2023 09:58:21 am

Ég skrifa undir þessa yfirlýsingu, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, MA nemi í þjóðfræði.

Reply
Áslaug H Cassata
11/28/2023 10:12:30 am

!

Reply
Andrea Elín Vilhjálmsdóttir
11/29/2023 03:00:26 am

Ég skrifa undir þessa yfirlýsingu.

Reply
Auður Viðarsdóttir
11/29/2023 03:14:21 am

Ég skirfa undir, Auður Viðarsdóttir doktorsnemi í þjóðfræði við HÍ.

Reply
Sigridur Asgeirsdottir
12/1/2023 07:46:57 am

Ég skrifa heilshugar undir þessa yfirlýsingu!

Reply



Leave a Reply.

    Félag þjóðfræðinga á Íslandi

    Hér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á [email protected]

    Færslur​

    May 2025
    April 2025
    March 2025
    January 2025
    October 2024
    September 2024
    August 2024
    May 2024
    November 2023
    August 2023
    October 2022
    August 2022
    September 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018

    Flokkar

    All
    Pistill
    Ráðstefnur
    Söfn
    Söfnun
    Viðburðir
    Þjóðfræði
    Þjóðfræðingur Mánaðarins

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Heim
  • Félagið
    • Lög félagsins
    • Stjórn félagsins >
      • Fyrri stjórnir
  • Viðburðir
    • Viðburðir 2024 - 2025
    • Landsbyggðarráðstefna 2023 >
      • Dagskrá Landsbyggðarráðstefnu
      • Málstofur og erindi
    • Myndir
  • Fréttir
    • Þjóðfræðingur Mómentsins
  • Þjóðfræðiefni
    • Hvað er þjóðfræði
  • Kreddur
    • Bárur
    • Brim
    • Móttaka greina
    • Ritstjórn Kredda
  • Hafa samband