Ég sá eitt sinn ljósmynd af ungri konu sem hafði það sterk áhrif á mig að það mætti jafnvel tala um að hún hafi eftir það ásótt mig og ofið sig inn í hugarheim minn. Myndin var í gamalli bók sem ég fann í grúski mínu í hillum Landsbókasafns þegar ég var rétt rúmlega tvítug. Ljósmyndin sýnir unga konu, Stanislawa P, sitjandi með augun lokuð í einskonar algleymi eða leiðslu. Hún er umkringd myrkri og klædd í einkennilegan búning sem gerir henni nær ókleift að athafna sig. Út úr munni hennar flæðir ljósleitt og órætt efni. Fegurð hennar er dáleiðandi og minnir að vissu leyti á helgimynd þar sem heilagur andi fyllir viðkomandi dýrling. Myndin er einnig ögn óhugnaleg, ef til vill vegna myrkursins sem umlykur konuna.
0 Comments
Inngangur
Þegar kom að því að ég færi að skrifa lokaritgerð mína í þjóðfræði var ég staðráðin í því að skrifa um ævintýri, enda hafði heimur ævintýranna og möguleikar rannsókna á þeim heillað mig verulega. Ég tók allar mína valeiningar innan kynjafræðinnar og var því spennt fyrir því að sameina þetta tvennt, ævintýri og kynjafræði. |
KreddurAllir geta sent inn grein fyrir Kreddur svo lengi sem viðfangsefnið tengist þjóðfræði á einn eða annan hátt. Greinar
December 2025
|