Ég útskrifaðist með Bed gráðu frá Kennaraháskóla Íslands 1993 og lokaritgerðin mín þar fjallaði um Grýlukvæði í safni Ólafs Davíðssonar: Íslenskar gátur, skemmtanir, vikivakar og þulur. (Ég man því miður ekki hvað hún heitir).
Fyrsta starf eftir útskrift? Fyrir og eftir útskrift vann ég sem stundakennari við námsbraut í þjóðfræði, gerði fjölmarga útvarpsþætti fyrir Rúv sem allir fjölluðu um þjóðfræði og starfaði líka sem leiðsögumaður í hjólaferðum á Ítalíu, Austurríki og Frakklandi en þar kom þjóðfræði reyndar lítið við sögu. Hvað ertu að gera núna? Núna á ég heima í Hveravík á Ströndum þar sem ég nota tímann til að tala við hestana sem hér eiga líka heima og hundinn Hansa sem hér ræður eiginlega öllu og svo er ég líka með vikulegt innslag héðan af Ströndum í Mannlega þættinum á Rúv. Hver eru þín helstu áhugamál? Mín helstu áhugamál eru að tala við hestana eins og áður hefur komið fram, fara með hundinum Hansa í gönguferðir, græða upp landið hér sem líklega hefur verið ofbeitt í gegnum aldirnar, fara á kajak á firðinum og njóta þess að vera hluti af þessu frábæra samfélagi sem hér er. Hefurðu einhverja hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? Ekki margt er ég hrædd um, ég vil þó t.d. helst ekki tala um eitthvað slæmt sem gæti gerst af því þá gæti það gerst, Kannski ekki hjátrú en ég mundi ekki vilja að álfasteinarnir hér í hlíðinni yrðu færðir til og mér finnst óþægilegt þegar hundurinn ,,merkir” sér þá. Já það er semsagt ekki mikil hjátrú eftir í mínu höfði og kannski hefur áralangt þjóðfræðigrúsk breytt einhverju þar um.
0 Comments
Stefnan fyrir landsbyggðarráðstefnu FÞÍ 2020 er tekin á Egilsstaði! Það voru þær Elsa Guðný Björgvinsdóttir og Eyrún Hrefna Helgadóttir sem að stóðu að umsókninni og munu koma að skipulagningu ráðstefnunar ásamt stjórn Félags þjóðfræðinga! Við erum ótrúlega spennt, þetta verður frábært!
Þeir þjóðfræðingar sem munu segja frá ritgerðum sínum eru:
Fjóla K. Guðmundsdóttir - Hulduheimafæðingar: Þróun og einkenni íslenskra ljósmóðursagna á 19. og 20. öld. Vigdís Lilja Guðmundsdóttir - „If I am a star, the people made me a star. No studio, no person, but the people did.“ Lífsferill Marilyn Monroe og áhrif hennar á poppmenningu. Ragnhildur Sara Arnarsdóttir - „Hátíð fyrir þá en þetta er dálítið kreisí fyrir hina.“ Upplifun fólks af Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Thelma Björgvinsdóttir - “...svo miklar drossíur” Silver Cross barnavagnar - saga, menning og fortíðarþrá í íslensku samfélagi á 20. og 21. öld Viðburðurinn er haldinn í samstarfi Félags þjóðfræðinga á Íslandi og Þjóðbrókar og eru allir velkomnir! Eftir Þjóðfræðigleraugun munum við svo færa okkur yfir á Stúdentakjallarann og halda fjörinu áfram þar. Sæl verið þið!
Þriðjudaginn 3. september ætlum við í Félagi þjóðfræðinga á Íslandi að skella okkur á Gleðistund eða Happy hour á Mímisbar á Hótel Sögu kl. 16:00 og fram á rauða nótt (Happy hour er á milli kl. 16-18 og svo aftur kl. 21-23). Hér má sjá viðburðinn á Facebook. Þetta er fullkomið tækifæri til að hitta alla aftur, spjalla saman og hafa gaman! Vonumst til að sjá sem flesta! Fyrsta starf eftir útskrift?
Vann hjá Sögusmiðjunni, við textagerð og rannsóknir, einkar skemmtilegt og gefandi. Hvað ertu að gera núna? Núna er ég í fæðingarorlofi, en áður en það byrjaði vann ég í Waldorfskólanum í Lækjarbotnum, sem kennari. Einnig vinn ég sjálfstætt við að fara með fólk í gönguferðir í náttúrunni, segja frá þjóðtrú og sögum sem tengjast umhverfinu. Myndi segja að ég sé sagnakona náttúrunnar. Elska að segja sögur af plöntum, steinum, fuglum og trjám. Einnig segi ég mikið af drauga -og galdrasögum á veturna. Hver eru þín helstu áhugamál? Mín helstu áhugamál er móðir jörð og allt sem henni fylgir, miðla skilningi á henni. Hún er allt sem við þurfum og okkur ber skylda til að skilja hana, virða og hugsa vel um. Einnig elska ég að rækta grænmeti og tómata. En það gerum við Tómas Atli Ponzi, maðurinn minn inni í Mofellsdal. Hefurðu einhverja hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? Ég hef eina hjátrú en ég fer alltaf með þessa þulu á áramótunum: Komi þeir sem koma vilja, veri þeir sem vera vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og mínum að meinalausu, Síðan kveiki ég á kertum hér og þar og býð álfana velkomna. Finnst þetta fallegur siður og hjátrú. Að vera þjóðfræðingur er dásamlegt, snertir á flestum sviðum mannlífsins. Takk fyrir mig! Núna í vor ætlar Félag þjóðfræðinga að halda landsbyggðarráðstefnu og okkur langar að prófa nýja aðferð til að velja stað til að heimsækja. Ætlunin er að fá þjóðfræðinga á landsbyggðinni okkur til aðstoðar og búa til landsbyggðarráðstefnunefnd sem myndi starfa með Félagi þjóðfræðinga við undirbúning, skipulag, samskipti á svæðinu og styrkumsóknagerð. Við mælum því með að að minnsta kosti tveir þjóðfræðingar sem eru tilbúnir til að taka áfram þátt í undirbúningsvinnu með okkur standi að uppástungu eða umsókn um stað fyrir ráðstefnuna.
Umsóknarfresturinn er til 30. ágúst og við hvetjum ykkur til að senda okkur tölvupóst á felagthjodfraedinga@gmail.com og hafa samband ef þið eruð með einhverjar spurningar varðandi fyrirkomulagið og einnig til að skila inn uppástungum. Gott væri að taka fram:
Í stjórn Félags þjóðfræðinga árið 2019-2020 eru Dagrún Ósk Jónsdóttir formaður, Alice Bower gjaldkeri, Ríkey Guðmundsdóttir Eydal ritari og Snjólaug G. Jóhannesdóttir og Dagný Davíðsdóttir meðstjórnendur. Varamenn eru Arndís Hulda Auðunsdóttir og Silja Ósk Þórðardóttir.
Nú ætlum við að efla til keppni um nýtt einkennis merki (lógó) fyrir Félag þjóðfræðinga á Íslandi! Það má vera hvernig sem er en verður auðvitað að tengjast þjóðfræði á einhvern hátt. Það er mikilvægt að lógó-ið sé vandað en ekkert hámark er á hve margar hugmyndir hver einstaklingur má senda inn, ekki er heldur nauðsynlegt að vera í félaginu til að senda inn hugmynd.
Skila þarf inn lógó-inu fyrir 20. maí í tölvupósti á netfangið felagthjodfraedinga@gmail.com í góðri upplausn! Kosið verður um lógóið á aðalfundi Félags þjóðfræðinga sem haldinn verður föstudaginn 24. maí næstkomandi! Skemmtileg verðlaun verða fyrir lógóið sem verður valið Lokaritgerð/ir: Lokaverkefnið mitt bar heitið ”Yfir dundi askan dimm” og var annars vegar rannsókn á upplifun fólks af öskufallinu sem kom í kjölfar eldgossins í Öskju árið 1875 og hins vegar sýning þar sem efninu var miðlað til almennings. Kveikjan að verkefninu var dagbók sem langalangafi minn, Gunnlaugur Snædal bóndi á Eiríksstöðum á Jökuldal, skrifaði á þeim tíma sem askan féll og geymir afar áhrifamiklar lýsingar. Verkefnið var unnið undir leiðsögn Terry Gunnell og sýningin var bæði sett upp á Vopnafirði og Egilsstöðum.
Fyrsta starf eftir útskrift? Safnstjóri Minjasafns Austurlands. Hvað ertu að gera núna? Er ennþá safnstjóri Minjasafns Austurlands. Hver eru þín helstu áhugamál? Saga, menning og alls konar grúsk. Hef líka gaman af því að lesa góðar bækur og er alltaf að reyna að gera meira af því. Útivist með fjölskyldunni er líka ofarlega á lista. Hefurðu einhverja hjátrú sem þú brýtur aldrei gegn? Ég er uppalin á áðurnefndum Eiríksstöðum þar sem þjóðsagan segir að heimilisfólkið hafi einu sinni tekið upp á því að spila á jólanótt með skelfilegum afleiðingum. Í minni fjölskyldu hefur því alltaf verið harðbannað að spila á aðfangadagskvöld og jólanótt og ég rígheld í þessa hjátrú. Á fundinum verður farið yfir starf félagsins síðasta árið, sagt frá því sem er framundan og kosið um nýtt einkennis merki (lógó) félagsins. Samkvæmt lögum félagsins er einnig komið að því að kjósa í stöður gjaldkera, ritara (núverandi ritari hyggst gefa kost á sér áfram) og meðstjórnanda. Framboð í öll þessi embætti er hægt að senda inn á netfang félagsins felagthjodfraedinga@gmail.com
Eftir það verður orðið gefið laust fyrir allskonar umræður um þjóðfræði, félagið og önnur skemmtilegheit. Boðið verður upp á bjór, vín og allskonar gómsætar léttar veitingar á fundinum. Eftir fundinn munum við svo rölta (eða taka strætó) saman á einhvern bar (nánari upplýsingar um það koma líka fljótlega)! Við vonumst til að sjá sem flesta. Þetta verður dúndur fjör |
Félag þjóðfræðinga á ÍslandiHér má finna allskonar skemmtilegar fréttir um viðburði, þjóðfræðinga, þjóðfræði og hvað sem er. Ef ykkur langar að koma einhverju á framfæri má senda fréttatilkynningar á felagthjodfraedinga@gmail.com Færslur
November 2023
|